Árshlutauppgjör Íslandshótela hf. fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2025

Rekstur Íslandshótela stöðugur á milli ára

Árshlutauppgjör Íslandshótela hf. fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2025

Stjórn Íslandshótela hf. staðfesti á fundi sínum í dag, föstudaginn 22. ágúst 2025, samstæðuárshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2025. Árshlutareikningur félagsins hefur nú verið birtur.

Helstu lykiltölur fyrstu sex mánaða 2025 miðað við sama tímabil 2024:

  • Rekstrartekjur námu 6.477,8 m.kr. (2024: 6.691 m.kr.)
  • EBITDA nam 688,7 m.kr. (2024: 735 m.kr.)
  • Tap eftir skatta nam 1.146,8 m.kr. (2024: 1.201,2 m.kr.)
  • Bókfært eigið fé í lok júní 2025 var 24.599,2 m.kr. (árslok 2024: 25.746,0 m.kr.)
  • Eiginfjárhlutfall í lok tímabilsins var 37,8% (árslok 2024: 36,3%)

Á fyrstu sex mánuðum ársins 2025 komu 955 þúsund ferðamenn til landsins samanborið við 963 þúsund á sama tímabili 2024, sem jafngildir samdrætti um tæp 1%. Mestu áhrifin voru á fyrstu þremur mánuðum ársins þegar ferðamönnum fækkaði um rúmlega 9% frá fyrra ári. Þróunin hafði neikvæð áhrif á rekstur félagsins á fyrsta ársfjórðungi, á sama tíma og aukinn rekstrarkostnaður vegna launahækkana og verðlagsþróunar jókst. Gengi íslensku krónunnar hafði einnig áhrif á rekstur og markaðsumhverfi á árinu, þar sem sterkt gengi krónunnar dregur úr samkeppnishæfni Íslands sem áfangastaðar.

Eftir samdrátt á fyrri hluta ársins tók við jákvæð þróun í júlí 2025 þegar ferðamönnum fjölgaði um 9% frá fyrra ári. Tekjur félagsins jukust um 11,6% og eru horfur fyrir ágúst einnig jákvæðar.

Á tímabilinu var Fosshótel Hekla selt, en það hefur verið lokað um nokkurt skeið. Sala þess er hluti af aðgerðum félagsins til að bæta rekstur og auka arðsemi.

Á árinu 2025 var jafnframt tekin ákvörðun um samruna Íslandshótela hf. og Fosshótels Reykjavík ehf. undir nafni Íslandshótela hf. Samruninn, sem samþykktur var af stjórn félagsins 28. júní 2025, gildir afturvirkt frá og með 1. janúar 2025. Markmið hans er að einfalda rekstur, samræma verklag og styrkja samkeppnishæfni félagsins.

Félagið hélt áfram vinnu við stækkun Hótel Reykjavík Grand á tímabilinu og voru stigin stór skref í áframhaldandi uppbyggingu hótelsins. Um er að ræða stærstu framkvæmd félagsins frá upphafi, þar sem bæði er ráðist í fjölgun herbergja, stækkun ráðstefnu- og fundaraðstöðu og endurbætur á þjónustuinnviðum. Markmið verkefnisins er að treysta stöðu Hótel Reykjavík Grand sem leiðandi ráðstefnu- og gistiþjónustuaðila á höfuðborgarsvæðinu og auka samkeppnishæfni félagsins til framtíðar. Verkefnið er jafnframt hluti af langtímastefnu félagsins til að bæta rekstur og styrkja tekjugrundvöll.

„Fyrri hluti ársins markaðist af færri ferðamönnum og auknum rekstrarkostnaði, en horfur fyrir síðari hluta ársins eru jákvæðar. Við sjáum greinilegan viðsnúning í júlí og ágúst með auknum tekjum samhliða fjölgun ferðamanna. Samruninn við Fosshótel Reykjavík mun styrkja reksturinn og bæta hagkvæmni til framtíðar. Þá er stækkun Hótel Reykjavík Grand eitt mikilvægasta uppbyggingarverkefni okkar frá upphafi og mun það styrkja stöðu félagsins verulega,“ segir Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela hf.

Árshlutareikningur félagsins er meðfylgjandi og er hann einnig að finna á heimasíðu félagsins, www.islandshotel.is/fjarfestar.

Félagið er með skráð skuldabréf í Kauphöll Íslands og fylgir þeim reglum sem gilda um félög með skráða fjármálagerninga á skipulegum markaði. Meðfylgjandi er staðfestingarbréf frá Deloitte vegna skuldabréfaflokks IH140647.

Nánari upplýsingar veitir:
Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela hf.
david@islandshotel.is
sími: 862 8089

Attachments

  • Árshlutareikningur samstæðu Íslandshótela hf. 1.janúar -30.júní 2025
  • Skýrsla Deloitte vegna eftirlits með skuldabréfaútgáfu 30.6.2025

Árshlutauppgjör Íslandshótela hf. fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2025

THỦ THUẬT HAY

Tạo ảnh hiệu ứng tan biến Pixel cực chất cực kì đơn giản

Trong bài viết này mình sẽ hướng dẫn các bạn tạo một hình ảnh hiệu ứng tan biến độc đáo mà rất đơn giản, một bức ảnh theo phong cách này rất đáng...

Cách xuất danh bạ từ Google Mail

Việc xuất danh bạ từ Gmail sẽ giúp rất nhiều trong việc bảo lưu thông tin cũng như danh bạ của người dùng để đề phòng trường hợp có lỗi xảy ra.

Cách đánh số trang trên Word 2016, 2013, 2010, 2007, 2003

Sử dụng Word trong công việc cũng như việc học tập là việc thường xuyên với khá nhiều người. Và bạn đã biết cách chèn số trang tự động vào văn bản Word? Tuy nhiên không phải ai cũng biết đánh số trang một cách tối ưu

Dùng iTunes cài đặt nhạc chuông cho iPhone sau khi cập nhật iOS 11

Sau khi tải và cài đặt chương trình, bạn chọn một bản nhạc mp3 bất kỳ và kéo thả vào iTunes. Tệp tin vừa thả vào sẽ được nằm tại mục Bài hát trong thư viện.

Cách kích hoạt chế độ Night Mode trên Samsung Galaxy S8

Night Mode trên Samsung Galaxy S8 có khả năng lọc các ánh sang màu xanh, khiến màn hình có ánh sáng dịu hơn, giảm sự tác động tới mắt người dùng.

ĐÁNH GIÁ NHANH

Trên tay Samsung Galaxy M22: Smartphone pin trâu 5.000 mAh, camera 48MP, màn hình 90Hz

Galaxy M22 ra mắt khoảng 3 tuần tước và trở thành smartphone tầm trung dòng M mới nhất nhà Samsung. Hôm nay, mình sẽ thực hiện trên tay Samsung Galaxy M22 để xem chiếc điện thoại này có gì đặc biệt nhé. Trên tay

So sánh Snapdragon 8 gen 1 với Apple A14, A15 Bionic: Khả năng đồ họa có bước tiến mới

Cũng như Galaxy S22 và iPhone 13, Qualcomm và Apple cũng luôn được người dùng đem bộ xử lí mới của họ ra so sánh. Vậy Snapdragon 8 Gen 1 có vượt qua A14.

Vivo Y21s có gì nổi bật?

Tân binh mới nhà Vivo là Vivo Y21s, bản nâng cấp của Y21 với giá bán từ 5,29 triệu đồng. Vậy Vivo Y21s có gì nổi bật để chinh phục được người dùng Việt chi tiền? Vivo từ lâu đã trở thành thương hiệu điện thoại được yêu